Líka í útvarpi - byrjar á morgun

Þjóðbraut eykur við sig. Hér eftir verður Þjóðbraut í útvarpi Hringbrautar fimm daga vikunnar. Mánudaga til fimmtudaga milli klukkan 12:30 og 13:00 og síðan er tveggja tíma þáttur á laugardögum milli tíu og tólf.

„Þjóðfélagsumræðan verður á laugardagsmorgnum, og svo sofum við út á sunnudögum. Einfalt og þægilegt. Mér þykir óþarft að bíða með það til sunnudags sem hægt er að gera á laugardegi,“ segir Sigurjón M. Egilsson, sem vel á áttunda ár stýrði Sprengisandi á Bylgjunni. „Mig vantaði aldrei. Mætti alla sunnudaga. Alls 387 þættir í beit,“ sagði Sigurjón.

Eftir að Sigurjón hætti með Sprengisand er þar nú fimmti stjórnandinn á aðeins rúmu hálfu ári. „Nú er mikið talað um stöðugleika. Hann skiptir máli. Hlustendur eiga skilið að það sé staðfesta. Að hægt sé að ganga að hlutunum vísum.“

Sjónvarpsþáttur Þjóðbrautar verður að vitaskuld áfram á dagskrá, mánudaga til fimmtudaga milli klukkan 21:00 og 21:30. Sigurjón og Linda Blöndal stýra þeim, hér eftir sem hingað til.

Útvarp Hringbrautar er vaxandi. Eyjólfur Kristjánsson, sá landsþekkti tónlistarmaður, er með þátt alla virka morgna milli 9:00 og 12 þar sem hann spilar íslenska tónlist og fræðir hlustendur um lög og texta. Meira er framundan.

Útvarp Hringbrautar næst sem hér segir:

89,1 - Reykjavík
91,7 - Blönduósi
91,1 - Sauðárkróki
89,9 - Egilsstöðum
89,9 - Selfossi
87,7 - Akureyri