Þakka ber þann mikla fróðleik sem er að finna í safni ritgerða sex frábærra fræðimanna : Líftaug landsins – Saga íslenskrar utanlandsverslunar 900- 2010, útg. Háskóli Íslands 2017. Sú saga hefst þá þegar með landnáminu .Ekki var hafið farartálmi fyrir landnemana, þá miklu sæfara með næga farkosti, að sækja það sem vantaði í búið á Íslandi. En að því kom að í Gamla sáttmála, sem íslensku höfðingjarnir gerðu við Noregskonung 1262, er kveðið á um að tryggja árlega siglingu sex kaupskipa til landsins.
Ætla má að eftir því sem leið á Þjóðveldistímabilið hafi skipakosturinn rýnað svo mjög, að það þurfti för um bónarveg til Noregskonungs að halda uppi siglingum. Þarmeð glataðist sjálfstæðið. Svo einfalt er þetta þó hugsanlega ekki. Verðbreytingar á útflutningsvörunum, vaðmáli, skreið og lýsi, gætu hafa spillt viðskiptakjörum og að kenningin um Gullöld í upphafi Íslandsbyggðar sé 19. aldar tilbúningur. Það er hið mikla verk Snorra Sturlusonar Heimskringla hins vegar ekki, enda hann bjargvættur sögu þess tíma og hinnar fornu norrænu menningar. Heimskringla er meistaraverk í Evrópusögunni .
Með Kalmarsambandinu 1382 flyst konungsvaldið til Kaupmannahafnar Þýskir og enskir kaupmenn taka upp verslun við Ísland og síðar alfarið Danir með einokunarverslun sem konungur innleiddi 1602. Einokunin , skelfilegt hagstjórnartæki merkantílismans , stóð fram eftir 18. öld og miklar hörmungar gengu yfir þjóðina. En eldsumbrot og kuldaköst eiga sinn þátt í þeirri hungursneyð og mannfalli. Þrátt fyrir það stóð íslensk menning og tunga bjargföst. Kaupmannahöfn var evrópsk menningarborg og gagnast Fjölnismönnum og skáldunum í Höfn vel sem slík á 19.öld frelsisbaráttunnar, . Og sú trú rættist að framar öðru myndu framfarir fást við sjálfstæði þjóðarinnar. Í anda þess var Eimskipafélagið - “ óskabarn þjóðarinnar”- stofnað 1914 til að tryggja þátt siglinga í líftaug landsins . En styrkleiki þeirrar taugar..er háður öðru en siglingum okkar, svo sem lærist í tveim heimsstyrjöldum 20.aldar þá er Atlanshafið verður framlenging af vígvöllunum.
Að fengu fullveldi 1918 lýsa Íslendingar sig hlutlausa þjóð en Þjóðabandalagið, sem átti að tryggja Versalafriðinn dugði ekki til þess. Útbreiðsla. trúarinar á alheimskommúnismann, sem náði hingað, var jafn fáránleg og væri um Kína í dag, sé einhver á þeirri línu. Ísland , frjálst og fullvalda ríki, skipar sér í samstarf i efnahags- og varnarmálum með öðrum lýðræðisríkjum. Árið 1949 standa Bandríkin að stofnun Atlanshafsbandalagsins , og þar með hefst hálfrar aldar friðarskeið Evrópu.
Öryggi Íslands hvílir öðru fremur á.varnarsamstarfinu í NATO sem mætir auknum þrýstingi frá Rússum, sem líta til síns gamla veldis og Kinverjum,sem verður ágengt um efnahagsleg ítök á heimsvísu . Afnámi viskipta- og greiðsluhafta voru skilyrði fyrir Marshallaðstoð Bandaríkjanna og úr þeim farvegi kemur Evrópusambandið , fríverslun í EFTA og EES og aukið viðskiptafrelsi í Bandaríkjunum. Líftaug okkar hlýtur að hvíla alfarið á viðskiptastöðu sem áunnist hefur við grannríkin austan hafs og vestan og er þarmeð leiðarljós á timum óvissu.