Lífsreynsla: át smám saman hrærivél

Sá ljómandi gullmoli sem rithöfundurinn Guðmundur S. Brynjólfsson er deilir með lesendum einhverri sérstæðustu lífsreynslu sem Íslendingur hefur upplifað á eigin skinni í nýjasta tilskrifinu sínu á hringbraut.is. Lesefnið er varla fyrir viðkvæma.

Hann kveðst sumsé sannfærður um að hann sé búinn að éta eina iðnaðarhrærivél frá Mjólkursamsölunni upp úr nokkrum Smjörvadósum. Þetta hafi verið að  tínast smám saman upp í kjaftinn á honum – og þaðan ofan í vömb, kepp, laka og vinstur ... \"flæðilínuna sem vinnur úr ósköpunum og býr til kúk – og greinir þungmálma frá feitmetinu sem býr í einni Smjörvadollu,\" eins og Eyrbekkingurinn lýsir því sjálfur í tilþrifamiklum skrifum sínum. 

Hann er með öðrum orðum algerlega viss um að hafa hreppt svo að segja samanlögð mistökin frá Mjólkursamsölunni; aðskotahlutirnir í smjörvanum hafi meira og minna allir safnast saman í hans búk - og nú sé svo komið að þar sé að finna efni í heila iðnaðarhrærivélarmaskínu - og veel að merkja; það vottar ekki fyrir sárindum í lífi rithöfundarins, hann er þvert á móti kátur með þetta allt saman og finnst þetta eiginlega jafngilda glimmrandi tilboði – eða sem nemur jú einni hrærivél í mörgum Smjörvadollum: \"MS kann að pakka inn kostakjörunum. Hver kannast ekki við sykurinn í jógúrtinu og sykurinn í skyrinu og Ara Edwald í öllu? – þá hollustuvöru,\" skrifar þessi lipri penni.

Nú á hann sumsé efni í skínandi fallega iðnaðarhrærivél, en hann vantar bara lím: \"Ég er að vonast eftir því að það fari of mikið af matarlími í Ostakökurnar hjá MS, þá kalla þeir inn, og þá er lag – því of mikið af matarlími er eins og tveggjaþátta Bostik-iðnaðarlím,\" skrifar ráðagóður Guðmundur og botnar skrif sín þessum orðum: \"Ég er samt ekki að taka neina áhættu – þau kunna jú að standa í manni strikamerkin þegar þær fara að loða saman rendurnar, en maður nartar þá bara í hörfræ með þessu og þá rennur það í gegn ...\"