Árið 2018 var meðalævilengd karla 81,0 ár og meðalævilengd kvenna 84,1 ár á Íslandi. Frá árinu 1988 hafa karlar bætt við sig rúmlega sex árum og konur rúmlega fjórum í meðalævilengd. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þar kemur einnig fram að ungbarnadauði sé minnstur í Evrópu.
Á 10 ára tímabili (2008–2017) var meðalævi karla lengst í Sviss, 80,7 ár, og skipuðu þeir fyrsta sætið í Evrópu. Fast á hæla þeirra komu karlar á Íslandi með 80,6 ár, Liechtenstein með 80,3 ár, Svíþjóð með 80,0 ár, Ítalíu með 80,0 ár, á Spáni með 79,7 ár og í Noregi með 79,7 ár. Styst var meðalævilengd evrópskra karla í Rússlandi, eða 62,6 ár, í Moldavíu var hún 65,9 ár og í Úkraínu var hún 66,0 ár.
Á sama tímabili var meðalævi kvenna á Spáni 85,7 ár og í Frakklandi 85,5 ár og skipuðu þær fyrsta og annað sæti í Evrópu. Næst á eftir komu konur í Sviss 85,0 ár, á Ítalíu með 84,9, í Liechtenstein með 84,4 ár, í Lúxemborg með 84,1 ár og á Íslandi með 84,0 ár. Meðalævilengd kvenna var styst í sömu þremur löndum og í tilfelli karlanna, í Moldavíu var hún 74,0 ár, í Rússlandi var hún 74,6 ár og í Úkraínu var hún 76,1 ár.
Ævilengd háskólamenntaðra jókst 2011-2018
Ævilengd háskólamenntaðra jókst meira en ævilengd grunn- og framhaldskólamenntaðra á árunum 2011 til 2018. Árið 2018 var meðalævilengd 30 ára kvenna með grunnskólamenntun 52,6 ár, á meðan þrítugir grunnskólamenntaðir karlar máttu búast við að lifa 48,8 ár til viðbótar. Konur með framhaldsskólamenntun máttu búast við að lifa rúmlega tveimur árum lengur en stallsystur þeirra með grunnskólamenntun, eða í 54,9 ár frá 30 ára aldri.
Munurinn var meiri meðal karla þar sem ævilengd 30 ára karla með framhaldsskólamenntun var að meðaltali 51,8 ár, eða rúmlega þremur árum lengri en karla með grunnskólamenntun. Aftur á móti mega þrítugir háskólamenntaðir einstaklingar eiga von á því að lifa lengur en þeir sem minni menntun hafa. Þannig var ævilengd 30 ára kvenna með háskólamenntun 56,1 ár eða 3,5 árum meira en þrítugra kvenna með grunnskólamenntun árið 2018. Ævilengd 30 ára karla með háskólamenntun var 53,7 ár eða tæpum fimm árum lengri en þrítugra karla með grunnskólamenntun.
Á tímabilinu 2011 til 2018 jókst ævilengdin frá 30 ára aldri mest meðal háskólamenntaðra, eða um 1,4 ár. Ævilengd 30 ára jókst minna meðal framhaldsskólamenntaðra eða 0,9 ár en styttist um 0,1 ár hjá grunnskólamenntuðum.
Ungbarnadauði í Evrópu minnstur á Íslandi
Árið 2018 létust 2.254 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 1.139 karlar og 1.115 konur. Dánartíðni var 6,4 látnir á hverja 1.000 íbúa og ungbarnadauði reyndist 1,7 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2018.
Á 10 ára tímabili (2008–2017) var ungbarnadauði á Íslandi að meðaltali 1,8 af hverjum 1.000 lifandi fæddum. Hvergi í Evrópu var ungbarnadauði jafn fátíður og hér. Ungbarnadauði var að meðaltali 2,2 í Finnlandi og Slóveníu, 2,5 í Svíþjóð og Noregi og 2,7 í Tékklandi og Kýpur. Tíðastur var ungbarnadauði í Tyrklandi, 11,7 af hverjum 1.000 lifandi fæddum.