Allt kapp verður lagt á að klára samninga í kvöld eða nótt. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagði þetta í kvöldfréttum RÚV og bætti við að staðan væri farin að skýrast.
Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, sagði að verið væri að hnýta lausa enda á samningagerð en þeim fari ört fækkandi. Bjóst Halldór Benjamín einnig við að fundað yrði inn í kvöldið og jafnvel inn í nóttina.
Fyrr í dag, eða klukkan 18:11, barst tilkynning frá forsætisráðuneytinu þar sem boðað var til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu klukkan 18:30. Þar stóð til að aðilar vinnumarkaðarins myndu kynna svokallaðan lífskjarasamning og ætlaði ríkisstjórnin samhliða því að kynna sínar aðgerðir í tengslum við lífskjarasamninginn.
Nánar á
https://www.visir.is/g/2019190409721