Í þættinum Lífsins list í kvöld heimsækja Sirrý og Friðþjófur Helgason myndatökumaður hina vinsælu Sætabrauðsdrengi sem voru að æfa sig fyrir tónleika sem haldnir verða á Austurlandi á næstunni. Sætabrauðsdrengir buðu upp á gómsætar kræsingar (sjá uppskriftir á síðunni síðar í kvöld) og tóku lagið af sinni alkunnu snilld.
Í þættinum verður einnig heilsað upp á sjómanninn og áhugaljósmyndarann Þröst Njálsson sem er með ljósmyndasýningu á Sjóminjasafninu þar sem viðfangsefnið eru líf og störf sjómanna um borð á Ásbirni RE 50. Hetjur hafsins takast á við ýmsar hættur eins og myndirnar sýna. Kíkt verður á veitingastaðinn á Sjóminjasafninu úti á Granda þar sem gómsæt fiskisúpa er á matseðli.
Og í Ráðhúsinu stendur mikið til. Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar segir frá fyrirhugaðri sýningu ,,Afrek kvenna á Íslandi.\" Óskað er eftir hugmyndum og verkum á sýninguna sem mun fylla ráðhúsið í september.
Lífsins list er á dagskrá á fimmtudagskvöldum kl. 20.30 og endursýndur á föstudagskvöldum og alltaf á hringbraut.is.