Lífsins list fer á listahátíð

Í þættinum Lífsins list í kvöld heimsækja Sirrý og Friðþjófur Helgason myndatökumaður Listasafn Íslands og skoða sýninguna "Saga - Þegar myndir tala" sem stendur yfir fram í september og er hluti af Listahátíð. Þar eru verk eftir Kjarval, Erró, Huldu Hákonar, Ragnar Kjartansson, Ólöfu Nordal og fleiri listamenn. 


Og Árbæjarsafn er heimsótt enda vinsæll viðkomustaður á sumrin. Þar runnu þau á hljóðið enda hljómaði tónlist út úr litlu kirkjunni í safninu. Hugi Jónsson söngvari og Kári Allansson organisti voru þar að flytja tónlist af nýjum diski sem þeir voru að gefa út ,,Kvöldbæn" heitir diskurinn og er safn þekktra sálma. Það er von þessara ungu listamanna að fólk gefi sig tónlistinni á vald og leyfi því að gerast sem gerist óháð trúarsannfæringu. Harmoniumleikurinn og baritonsöngurinn nýtur sín vel í þessari litlu en fallegu kirkju. 


Og leiðin lá næst í bíl með Gunnari Hanssyni leikara og leikstjóra kvikmyndarinnar ,,Bakk" sem hlotið hefur lof gagnrýnenda. Gunnar bakkaði af mikilli fimi meðan á viðtalinu stóð. Hann ræðir um kvikmyndina sem er gamanmynd eins og hann sjálfur vill helst sjá í bíó. ,,Það er gaman að hlæja en ég vil líka að myndir hafi innihald og snerti mig," sagði Gunnar Hansson og bakkaði af list.


Og þátturinn endar við Sjóminjasafnið í Reykjavík en í tilefni Sjómannadagsins verður þar opnuð sýningin ,,Sjókonur". En konur hafa, þegar grannt er skoðað, verið meira til sjós í gegnum tíðina en almennt er talið. Sýningin byggir á viðamikilli rannsókn mannfræðingsins  Dr. Margaret Willson. 


Þátturinn er frumsýndur á fimmtudagskvöldum kl. 21.30 og endursýndur á föstudagskvöldum og alltaf á hringbraut.is