Lífshættuleg streita

 

„Að jafnaði dvelja 15-20 manns í Heilsustofnuninni í Hveragerði eftir að hafa brotnað niður sökum streitu,“ segir Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragði í þættinum ,,Fólk með Sirrý” á Hringbraut á miðvikudagskvöld kl. 20:30. Rætt er um streitu sem getur verið lífshættuleg. Signý Óskarsdóttirsegir sögu sína en hún keyrði sig í þrot andlega og líkamlega sökum streitu.

Fyrir um ári síðan keyrði streitan hana í kaf,  hún sagði upp stjórnunarstarfi og þurfti að taka líf sitt til endurskoðunar. Hún þáði alla þá hjálp og ráðgjöf sem hægt var að fá hjá Heilsustofnuninni og víðar og í dag er hún aftur orðið ,,hún sjálf” og farin að njóta lífsins – en á breyttan hátt. Signý hefur gegnt ýmsum stjórnunarstöðum m.a. verið sveitastjóri, skólastjóri og verið í fullu framhaldsnámi með vinnu og  fjölskyldu auk annarra verkefna. Hún segir í þættinum að hún hafi verið alveg dæmigerð duglegt íslensk kona með mikla ábyrgðartilfinningu ,,Ég var dæmigert streitutilfelli.” Signý gat ekki sagt nei og hlustaði ekki á viðvörunarbjöllur þegar streitan var farin að nálgast hættumörk. ,,Það var eins og ég hefði tekið batteríið út úr reykskynjaranum. Og hélt áfram að keyra mig áfram.  Þar kom að því að það „kviknaði í“ og ég hrundi niður. 

Hún segir frá streitunni og bataferlinu á einlægan og greinargóðan hátt í þættinum. Og Margrét Grímsdóttir hjúkrunarfræðingur fer yfir streitueinkenni og ráð.