„Ég var farinn að halda að bókin kæmi bara ekkert úr undirdjúpum jólabókaflóðsins, en viðtökur síðustu daga vekja mér bæði gleði og þakklæti,“ segir Illugi Jökulsson um bók sína „Úr undirdjúpunum til Íslands“ sem fjallar um ævintýralegt lífshlaup Juliusar Schopka sem var þýskur kafbátasjóliði í fyrri heimsstyrjöld en fluttist síðar til Íslands og varð hér mikilsmetinn borgari.
„Það gleður mig sérstaklega hvað bókin virðist höfða til fólks úr öllum áttum. Ég lagði mikinn metnað í þetta verk og þessvegna gladdi sérstaklega minn hégóma að Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur og sérfræðingur í fyrri heimsstyrjöldinni skyldi senda mér góða kveðju að lestri loknum og ósk um að bókin rati til sem flestra.“
En það eru ekki bara sprenglærðir sagnfræðingar sem bera lof á bókina. Útvarpsmaðurinn vinsæli, Ómar Úlfur Eysteinsson, segir:
„Ég hef verið sèrlegur àhugamaður um sögu heimstyrjaldanna beggja eftir að hafa setið tíma hjà Lárus Ágúst Bragason prófasti að Miðhúsum hvar saga stríðanna lifnaði við. Bestu bækurnar um bæði stríð hvíla lengi í lófunum enda hægt að kjasma vel à hverri fràsögn. Èg ítreka ànægju mína með þessa bók Illuga. Ef að þú elskar einhvern þà setur þú þessa bók í þann jólapakka! Þessi bók er meira spennandi heldur en Die Hard!“
Og bókmenntaáhugamaðurinn Össur Skarphéðinsson, sem viðurkennir að hann sé af Fremraháls-ættinni eins og Illugi, skrifar m.a. í langri Facebook-færslu:
„Hvílík dásemdarsaga! Fyrir utan þjóðkunnan frásagnarþrótt Illuga er saga Juliusar Schopka söguleg perla sem heldur manni hugföngnum frá upphafi til enda... Í dramatískri frásögn er þó sagan af íslensku hrossunum tveimur sem börðust fyrir lífi sínu og reyndu að synda til lands hreinasta epík. Illugi nýtir yfirburðaþekkingu, sagnfræðihæfileika og ritleikni til að draga upp ógleymanlegar myndir af löngu gleymdum atburði úr Íslandssögunni sem er einstök lesning. Það á sosum ekki að bera of mikið lof á Fremra-Hálsættina. Reynslan sýnir að það stígur henni til höfuðs. En fjandi er hann Illugi góður sögumaður!“
En bókin virðist reyndar „hættulega“ spennandi ef marka má færslu Kristjönu Guðmundsdóttur Motzfeldt:
„Þessa bók, Úr undirdjúpunum til Íslands, hafði ég reyndar ætlað að geyma mér þangað til á jólunum, en stalst í hana og gat hreinlega ekki lagt hana frá mér. Illugi er auðvitað frábær penni og sögumaður, og þarna er hann með efni í höndunum sem myndi gera flesta skáldsagnahöfunda græna af öfund! Já, lífið tekur oft öllum skáldskap fram. Saga Juliusar Schopka er dæmi um það. En hvað ég þá að lesa um jólin í staðinn?“