Lífið er lag í kvöld á Hringbraut: Árni Óðinsson skíðar enn í Hlíðarfjalli

Þátturinn Lífið er lag er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.30 í kvöld en þetta er 2. þáttur í nýrri þáttaröð sem hófst 9. febrúar.

Í þætti kvöldsins mun formaður Bændasamtakanna svara áleitnum vangaveltum Helga í Góu um hvað verður um Hótel Sögu og hvort þar verða hugsanlega rými fyrir eldri borgara á næstunni.

Megin efni þáttarins kemur frá Akureyri en þeir Sigurður K. Kolbeinsson þáttastjórnandi og Friðþjófur Helgason kvikmyndatökumaður lögðu leið sína um Eyjafjarðarsvæðið nú núverið og tóku marga góða Íslendinga tali. Rætt verður við Hallgrím Gíslason formann félags eldri brogara á Akureyri um félagið og starfsemina fyrir norðan og síðan verður farið í Hlíðarfjall þar sem einn fremsti skíðakappi Íslendinga hér á árum áður, Árni Óðinsson ræðir um gildi skíðaíþróttarinnar, einkum þegar komið er á efri árin en hann er spræklur sem lækur um þessar mundir.

Undir lok þáttarins heimsækir þáttastjórnandinn Sunnu Borg leikkonu og ræðir við hana um glæsilegan leikhúsferil hennar og störf fyrir Leikfélag Akureyrar um árabil. Fleiri innslög frá Eyjafirði og þéttbýlisstöðum á Tröllaskaga verða sýnd í næstu þáttum.