Þáttaröðin Lífið er lag hefur göngu sína að nýju á Hringbraut í kvöld klukkan 20:30, en þetta er þriðja þáttaröð þessara vinsælu þátta. Þættirnir fjalla um stöðu, hagsmuni og framtíðarsýn eldri borgara á Íslandi og eru m.a. unnir í samstarfi við FEB.
Í þessum fyrsta þætti verður rætt við Ellert B. Schram sem var endurkjörinn formaður FEB á dögunum og eftir það við Dr. Ólöfu Guðnýju Geirsdóttur um mataræði og hollustuhætti eldri borgara.
Þá verður litið inn á nýafstaðin aðalfund FEB og loks rætt við Jón Þór Hannesson fyrrum kvikmyndagerðarmann um lífið eftir 67 ára. Þættirnir verða á dagskrá vikulega á þriðjudögum klukkan 20:30 til og með 28. maí n.k.