Lífið er ekki excel-skjal

Það skiptir ekki máli hvaða skattar eru lækkaðir. Hvort það eru skattar á almenning, eða bara á fyrirtæki. Ef umhverfi fyrirtækja er þannig að þau blómstri, þá að endingu hefur almenningur hag af því. Þetta er skoðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismann Sjálfstæðisflokksins og varaformanns fjárlaganefndar þingsins.

Í kvöldfréttum ríkissjónvarpsins sagði þingmaðurinn: „Það er nú ekki eins og það nýtist ekki heimlium í landinu ef að það eru lækkaðir skattar, það kemur heimilunum beint til góða. Það skiptir ekki hvort það eru lækkanir skatta á heimili eða á fyrirtæki. Það er nú ekki þannig að lífið sé excel skjal. Þvert á móti þarftu að vera með umhverfi til þess að atvinnulífið geti blómstrað sem að mun nýtast fólkinu í landinu með beinum hætti.“