Lífið eftir atvinnumennskuna

Pepsi-deild karla á fótboltaþáttinn 433 með húð og hári í kvöld, en hann er að vanda á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:15 á miðvikudagskvöldum.

Umsjármaður þáttanna Hörður Snævar Jónsson byrjar á því að kíkja í Árbæinn og ræða við Ásgeir Börk Ásgeirsson, en hann var að koma aftur heim úr atvinnumennsku fyrir tímabilið og litar deildina sínum sterku litum svo eftir er tekið. Hann ræðir um slakt gengi á heimavelli og kröfurnar sem hann setur á lið sitt í sumar.

Í síðari hlutanum er svo farið á Vodafone-völlinn þar sem rætt er við tvo af betri leikmönnum liðsins, þá Kristin Frey Sigurðsson og Sigurð Egil Lárusson. Þeir félagar ræða um samheldnina sem er í hópi Vals sem hefur skilað góðum stöðuleika undir stjórn Ólafs Jóhannessonar.

Fótboltaþátturinn 433 er sem fyrr segir á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:15 í kvöld.