Íslensku lífeyrissjóðirnir munu einir gera tilraun til að kaupa 87% hlutafjár í Arionbanka af slitastjórn Kaupþings.
Í gær höfnuðu þeir tilboðum frá Artica Finance annars vegar og Virðingu hins vegar um samstarf vegna hugsanlegra kaupa.
Lífeyrissjóðirnir vildu ekki gera upp á milli fyrirtækjanna og telja að meiri sátt geti náðst um að sjóðirnir standi einir að kaupunum. Þeir hafa áform um að selja hluta af bankanum til almennings á sama verði takist samkomulag um kaupin við slitastjórn Kaupþings. Arionbanki verður þá skráður Í Kauphöll Íslands.