Lífeyrissjóðir afskrifa yfir milljarð

Kröfur í þrotabú United Silicon nema um 23 milljörðum króna samkvæmt upplýsingum frá Geir Gestssyni, skiptastjóra þrotabús United Silicon. Viðskiptablaðið segir frá í dag.

Arion banki er langstærsti kröfuhafinn með kröfur upp á um 9,5 milljarða króna. Arion banki afskrifaði fyrir áramót 4,8 milljarða króna fjárfestingu í United Silicon. United Silicon var svo lýst gjaldþrota í janúar síðastliðnum

Búist er við að lítið sem ekkert fáist upp í almennar kröfur. Meðal kröfuhafa eru þrír lífeyrissjóðir sem reknir eru af Arion banka: Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Eftirlaunasjóður íslenskra atvinnuflugmanna (EFÍA) og Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands (LSBÍ).

Rúmlega milljarður eða 1,3 milljarða fjárfesting lífeyrissjóðanna sem reknir eru af Arion banka hefur verið afskrifuð af fullu. Þá afskrifaði Festa lífeyrissjóður 900 milljóna fjárfestingu sína í kísilverinu.