Veruleg hækkun gæti orðið á lífeyrisgreiðslum hluta landsmanna ef tillögur Samtaka atvinnulífsins og ASÍ ganga eftir. Á móti kemur að falast er eftir atvinnuframlagi fólks fram að sjötíu ára aldri en ekki yrði refsað fyrir atvinnuþátttöku eftir 67 ára aldur með sérstakri skerðingu, krónu á móti krónu, eins og nú er.
Þetta kom fram í þættinum Okkar fólk með helga Pé í gærkvöld, en þar fóru Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Gylfi Arnbjörnsson forseti ASí yfir þá vinnu sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur. Virðist sem sú vinna muni skila miklum árangri á skömmum tíma. Vinnan er hluti af SALEK samkomulaginu og kom fram í þætti gærkvöldsins, sem hægt er að skoða hér á vef stöðvarinnar, að ekki er um að ræða lækkun á lífeyrisgreiðslum hjá opinberum starfsmönnum heldur samræmingu kjara almenns vinnumarkaðar og opinberra starfsmanna.
Núverandi kerfi byggir á að opinberir starfsmenn fái 76% af ævitekjum ínum í lífeyri. Á almennum markaði er hlutfallið 56%. Stefnt er að því að jafna þetta bil á þremur árum þannig að allir fái jafnar greiðslur. Jafnframt er gert ráð fyrir að lengja atvinnuþátttöku úr 67 árum í 70 ára aldur en þá munu atvinnutekjur ekki koma til skerðingar eftir 67 ára aldur og gildir þá einu hvort viðkomandi starfar fram á tíræðisaldur eða skemur.
Okkar fólk er endursýnt í dag á Hringbraut, en einnig endursýnt næsta föstudagskvöld.