Grein Birzer má finna í desember útgáfu tímaritisns The American Conservative. Hann spyr að því hvert bandaríska lýðveldið stefni og svara um hæl að það stefni að endalokum. Pólitískar stofnanir í vestrænum ríkjum endist ekki mikið meira en par hundruð ára. Slíkar stofnanir búi ekki yfir samheldni ríkt og Gyðingar sem eiga sér fjögur þúsund ára sögu um þessar mundir eða kaþólska kirkjan sem er tvö þúsund ára. Birzer telur að skuldastaða bandaríska lýðveldisins verði banbiti þess. Skuldirnar segir hann nema 21 trilljón Bandaríkjadala og fari vaxandi. Bandaríkin séu gjaldþrota. En öllum virðist standa á sama um það. Hvað kemur í stað bandaríska lýðveldisins segir Birzer ekki rétta spurningu núna því rétta spurningin sé sú hvenær bandaríska lýðveldið líði undir lok en ekki hvort það líði undir lok.
Nánar www.theamericanconservative.com