Líf vill gefa borgarbúum kort í strætó: „Sterkar almenningssamgöngur og breyttar ferðavenjur eru framtíðin!“

Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna lagði fram tillögu í borgarráði í gær (föstudag) um að senda ætti áfyllanlegt Klapp kort á hvert heimili í Reykjavík með tveimur eða fleiri ókeypis ferðum með Strætó.

Hugmyndin er að kynna fólk fyrir þægindum almenningssamgangna, hvetja til notkunar þeirra og efla Strætó. Þá væri hægt að útvíkka hugmyndina og taka hana upp á vettvangi SSH og gefa hverju heimili á höfuðborgarsvæðinu eitt Klapp kort. Líf telur að sterkar almenningssamgöngur og breyttar ferðavenjur séu framtíðin.

Ætli þetta myndi leysa samgönguvandann í Reykjavík ?