Líf varar við að þessu verði komið upp víða í borginni - „Áður en einhver hrópar húrra“

Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi sem nú sækist eftir áframhaldandi oddvitasæti hjá Vinstri Grænum, er ekki viss um að upplýstar gangbrautir séu svarið í Reykjavíkurborg. Henni finnst að minnsta kosti mikilvægt að þær verði skoðaðar vel áður en þær verði settar upp um alla borg.

Umræddar gangbrautir virka þannig að þegar fólk gengur yfir brautina kvikna ljós meðfram henni. Markmiðið er að auka umferðaröryggi svo það verði ökumönnum ljósara að gangandi vegfarendur séu á ferð. Eitthvað hefur verið fjallað um slíkar brautir í vikunni á samfélagsmiðlum eftir umfjöllun Stöðvar 2 um þær. Fjórar slíkar eru nú í Reykjavík . um þær. Ein er við Melaskóla, önnur við Rofabæ, sú þriðja við Seljaskóga og sú síðasta við Fjallkonuveg.

Haraldur nokkur gagnrýndi brautirnar á Twitter og sagði: „Skilaboðin á yfirborðinu eru einföld. Aukið öryggi gangandi vegfarenda, þá sérstaklega barna. Ef við skoðum þetta bara örstutt eru skilaboðin aðeins flóknari og hagnast allt öðrum hópi vegfarenda.“

Hann segir að skilaboðin til gangandi vegfarenda séu í raun þau að það sé „stórhættulegt“ að fara yfir götur. Hann telur að bílstjórar muni líta svo á að hraðaakstur sé í lagi þar sem upplýstar gangbrautir séu ekki og veltir fyrir sér vandamálunum sem muni spretta upp þegar gangbrautirnar bila.

„Hvað gerist svo þegar LED ljósin bila? Skilaboðin eru jú skýr - ef einhver þarf að þvera götuna þá koma ljós. Annars þarftu ekkert að pæla í hlutunum, og alls ekki hægja á þér.“

Líf tók undir þessa gagnrýni Haralds og skrifaði: „Áhugavert. Við þurfum að greina þetta áður en einhver hrópar húrra og vill rigga þessu upp um alla borg,“