Líf kemur steinhrúgunum til varnar – Elín veðurfræðingur er ekki sátt

Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir að fólk ætti að spara orkuna og gefa verkefnum á borð við hrúgunum við Eiðisgranda séns.

Íbúar voru mjög óhressir við grjóthrúgurnar við Eiðisgranda í fyrra, sögðu íbúar þær litla prýði og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins töldu þær geta valdið hættu ef grjótið færi í flug.

Þórólfs Jónssonar, deildarstjóri náttúru og garða, sagði í svari fyrir fyrirspurn borgarfulltrúa að hrúgurnar væru hljóðmanir. „Það var verið að vinna verkið í kappi við veturinn og vannst ekki tími til að huga nægilega vel að frágangi,“ sagði hann. „Ákvörðun um mölina var ekki mikið ígrunduð og manirnar höfðu ekki verið hannaðar heldur unnar beint í landið. Manirnar urðu óþarflega háar og sérstaklega ein mönin sem er of há og of brött og lokar sýn úr Rekagranda.“

Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins, sagði þetta flopp. „Fram kemur í máli borgarinnar að breyta ætti svæðinu yfir í náttúrulegt yfirbragð með strandgróðri. Þvílíkt dæmalaust rugl. Upp úr grjóthrúgunum sprettur nú njóli og annað illgresi sem á ekkert skylt við strandgróður.“

Líf birtir myndir af hrúgunum á Twitter í dag og segir: „Munið þið eftir “steinhrúgunum” sem allir voru að reita hár sitt yfir hérna í upphafi árs? Fólk ætti kannski að spara orkuna næst, kynna sér málin betur og gefa verkefnum séns,“ segir hún.

Netverji svarar henni og segir: „Sorry en það þarf alveg massíva meðvirkni til að finnast þetta flott.“

Líf svarar: „Meðvirkni með hverju þá? Gróðri og villtum sjávarplöntum?“

Veðurfræðingurinn Elín Jónasdóttir gagnrýnir þetta og segir: Það má alveg reyta hár sitt yfir svona hrúgum sem eru settar niður á hvassasta tíma og gróa mjög löngu síðar,“ segir hún. „Hér getur enn orðið grjótkast í >18 m/s. Svo er þetta ljótt.“