Líf ellýjar var „töff\"

Katrín Halldóra Sigurðardóttir, leikkona hefur gjörsamlega sigrað á leiksviði Borgarleikhússins í hlutverki Ellýjar Vilhjálms, einnar vin­sæl­ustu og dáðustu dæg­ur­laga­söng­kona Íslands­sög­unn­ar. Ólafur Egill Egilsson er annar höfundur sýningarinnar ásamt Gísla Erni Garðarssyni sem leikstýrir.

Ellý er sýnd er fyrir fullu húsi og verður færð á stóra sviðið í haust. Sýningin spannar breitt tímabil 1955-1995 og er samstarf Borgarleikhússins og Vesturports .

Katrín Halldóra og Ólafur Egill mæta til Lindu Blöndal í Þjóðbraut í kvöld, skírdag. Þjóðbraut er á dagskrá á milli 21 og 22 og svo endursýnd.