Líf Magneudóttir, oddviti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segir ákvörðun sína um flokkurinn muni ekki sækjast eftir því að vera í meirihluta í Reykjavík tekna af yfirvegun.
Frá þessu greinir Líf í Facebook-færslu í kvöld.
Líf greindi frá ákvörðun sinni á sunnudaginn og hefur hún verið gagnrýnd. Í Facebook-færslu sinni segir Líf að henni þyki ömurlegt að lesa samsæriskenningar.
Að sögn Lífar eru ákvarðanir hennar teknar af yfirvegun og að enginn stýri þeim. „Ég ber þær vissulega undir hóp fólks sem ég treysti og sem fylgir mér að málum.“
Þá sé hún fullorðin kona í forystu fyrir hreyfingu og að það sé gott að finna stuðning félaga sinna í Vinstri grænum.
„Sparið ykkur samsæriskenningar góða fólk! Ég vinn fyrir alla borgarbúa. Líka þá sem eru á móti mér," segir Líf að lokum.