Líf ætlar að starfa áfram

Líf Magneudóttir varaborgarfulltrúi sem sett var sem formaður mannréttindaráðs í gærkvöld að upplagi Sóleyjar Tómasdóttur innan VG í bprgarstjórn hefur tjáð sig um sína hlið á málinu. Hún segist ekki hafa viljað tjá sig um málið enda sé það Sóleyjar að skýra hana.

Svo segir Líf: „Fyrir mér horfir málið svona við: Það sem er gert er gert. Núna skiptir mestu að við horfum fram á veginn og stöndum saman um að vinna að málum Vinstri-grænna í borginni og höfum áhrif til góðs fyrir íbúa og umhverfi. Innanflokksátök um persónur hjálpa okkur ekki við það.

Ef það má draga lærdóm af þessu þá er hann sá að það þurfi að bæta ákvarðanatökuferlið í borgarstjórnarhópnum og efla tengsl hópsins og grasrótarinnar í flokknum. Það er verkefni okkar allra og ég mun leggja mitt af mörkum í þeirri vinnu og treysti því að aðrir í borgarstjórnarhópnum geri slíkt hið sama,“ skrifar Líf á eigin fésbókarsíðu.

Hringbraut hefur sent Sóleyju Tómasdóttur fyrirspurn og falast eftir skýringum.