Í gær var fimm mánaða drengur lagður inn á Barnaspítala Hringsins með bráðanýrnabilun af völdum E. coli sýkingar. Líðan hans hefur farið versnandi og það skýrist í dag eða á morgun hvort drengurinn þurfi að fara í blóðhreinsun. Alls hafa 10 börn smitast af E. coli bakteríunni eftir heimsóknir á ferðaþjónustubæinn Efstadal II á síðustu vikum. Í níu tilfellum af 10 má rekja smit barnanna til heimsókna á bæinn, en talið er líklegt að tíunda barnið hafi smitast af systkini sínu. Þrjú af börnunum 10 hafa verið lögð inn á Barnaspítalann með bráðanýrnabilun.
Í samtali við Vísi segir Viðar Örn Eðvarðsson, sérfræðingur í nýrnalækningum, að fyrsta barnið sem greindist með bráðanýrnabilun sé útskrifað og sé við ágæta heilsu, annað barnið hafi þurft blóðhreinsun og sé nú á hægum batavegi en að þriðja barnið, fimm mánaða drengurinn, sé enn mjög veikur.
Að sögn Viðars heilsast hinum börnunum sem fengu E. coli-sýkingu nokkuð vel. Þó er ekki enn útséð hvort þau fái bráðanýrnabilun..
„[Þ]að er rétt að hafa í huga að maður getur ekki verið öruggur um að þeir sem fá þá sýkingu fái ekki þessa nýrnabilun fyrr en liðnir eru að minnsta kosti tíu dagar frá því að niðurgangur hófst. Þannig að það þarf að fylgja þessu vel eftir og við erum búin að vera í sambandi við alla í morgun og þetta virðist vera að ganga þokkalega. En þetta er lúmskt og það þarf að fylgja þessu eftir með rannsóknum, blóðrannsóknum,“ segir hann.
Viðar segir að flestir sem fái bráðanýrnabilun ná sér að fullu. „Þó nokkrir þó eru með skerta nýrnastarfsemi eitthvað þegar frá líður en geta lifað alveg eðlilegu lífi í sjálfu sér en þurfa eftirlit, kannski eftirlit nýrnalæknis.“
Eiga það sameiginlegt að hafa borðað ís
Fyrr í dag sendi Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir frá sér tilkynningu þar sem hann áréttaði að ekki væri hægt að kenna E. coli smituðum kálfum á bænum um smit barnanna, líkt og eigendur Efstadals II ýjuðu að í fréttum í gær. Ekki komust öll börnin í snertingu við kálfana og rauna gerði aðeins helmingur þeirra það.
Þess má auk þess geta að gestir og þar á meðal börn geta fengið að gefa kálfunum ís á staðnum, svo í raun gæti það hafa gerst að börn eða fullorðnir hafi smitað kálfana með því að gefa þeim ís sem innihélt E. coli bakteríuna, en ekki öfugt.
Börnin níu eiga það hins vegar sameiginlegt að hafa borðað ís á staðnum þar sem smitið kom upp. Þær bakteríur sem sýktu börnin greindust með fundust ekki í ís á staðnum en ísinn sem rannsakaður var var hins vegar ekki sá sami og börnin höfðu borðað, því ný framleiðsla var komin í sölu. Í tilkynningu sóttvarnalæknis segir að mögulegar smitleiðir á bænum séu margar en að sterkustu faraldsfræðilegu tengslin séu við ís sem framleiddur var á staðnum.
Fleiri bakteríurannsóknir standa nú yfir, meðal annars á starfsfólki staðarins. Aðgerðir og ráðstafanir sem gripið var til beinast að því að rjúfa smitleiðir með því að stöðva framleiðslu á ís og samgangi við kálfa á staðnum, og skerpa á vinnureglum og hreinlæti.