Prófessor í heimspeki segir að mál Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra verði vandræðalegra og vandræðlegra.
Vísir greindi frá því áðan að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi í grein í Tímanum sem sérstaklega var gefinn út af Framsóknarflokknum fyrir kosningar árið 2009 og fylgdi með Fréttablaðinu, birt upplýsingar um fjármál sín en ekki getið einu orði um Wintriseign sína á Bresku Jómfrúareyjum.
Hann hafi þá sagt að sömu skilyrði skyldu gilda um frambjóðendur flokksins í efstu sætum og þingmenn hans um að gera öll fjárhagsleg tengsl opinber.
Þegar gengið var til kosninga hafi þó eiginkona forsætisráðherra ekki verið búin að færa félagið frá þeim hjónum til hennar eignar einnar. Í færslu á bloggsíðu sinni á páskadag segi Sigmundur að frá árinu 2007 og þar til skráð eignarhald hafi verið \"lagfært\" hjá umsýslufélagi Wintris „síðla árs 2009“ hafi þau hjónin bæði verið skráð fyrir félaginu eins og bent er á í frétt Vísis.
Jón Ólafsson, prófessor við Háskólann á Bifröst sem kennt hefur siðfræði og stýrði Samhæfingarnefnd um siðferðisleg viðmið í stjórnsýslu, segir í samtali við Hringbraut að ef Sigmundur Davíð hafi gefið upp eignir sínar og sleppt Wintris-félaginu viljandi sé það honum ekki til hagsbóta. Jón segist ekki vilja tjá sig nánar um málið að svo stöddu, að teknu tilliti til þess að upplýsingar um málið séu enn takmarkaðar.
\"En málið verður alltaf vanrdæðalegra og vandræðlegra,\" segir prófessor Jón Ólafsson.
Hringbraut hefur sent forsætisráðherra fyrirspurn vegna málsins sem er einn angi hins svokallaða Tortólamáls.