Lexía fyrir samfylkinguna

„Það er uppörvandi að almenningur skuli að einhverju marki meta fólk og verk óháð áróðri og ófrægingum í fjölmiðlum,“ segir Stefán Ólafsson prófessor um könnun Gallup.

Á föstudagskvöld var í þætti Gísla Marteins á Rúv kynnt könnun Gallup þar sem spurt var hvaða forsætisráðherra hefði staðið sig best. Jóhanna Sigurðardóttir hlaut langbesta útkomu og fyrrgreind ummæli Stefáns vísa til niðurstöðunnar og á þar eflaust m.a. við skeytin frá ritstjóra Morgunblaðsins sem mjög hefur hallað á Jóhönnu með skrifum sínum.

Um 43% svarenda töldu Jóhönnu hafa staðið sig best.

„Þetta er sérstaklega skemmtilegt vegna þess að Jóhanna hefur ekki notið sannmælis. Raunar hefur hún verið ófrægð á sérstaklega grófan hátt, meðal annars af pólitískum keppinautum, ekki síst þeim sem er í öðru sæti á listanum.

Almenningur lætur þetta nú sem vind um eyru þjóta og kann að meta verk Jóhönnu. Það er uppörvandi að almenningur skuli að einhverju marki meta fólk og verk óháð áróðri og ófrægingum í fjölmiðlum,“ skrifar Stefán um málið í pistli á eyjan.is.

 Könnunin er einnig lexía fyrir Samfylkinguna að mati prófessorsins. „Nú er þar varla að finna verðugan arftaka Jóhönnu í forystusveitinni. Framsókn skartar hins vegar verðugum arftaka Jóhönnu á sviði velferðarmála, Eygló Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra.“