Léttir að vera ekki illmenni og hálfviti

Þráinn Bertelsson kvikmyndagerðarmaður, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, segir sögu af samskiptum sínum við ungan sjónvarpsþáttastjórnanda.

Kemur fram að Þráinn fór í viðtal við ungan og efnilegan mann sem sér um þátt um kvikmyndir á ÍNN. „Allt gekk það snurðulaust og ánægjulega fyrir sig og sjálfur tæknistjórinn Kristinn Svanur sá um upptökuna,“ skrifar Þráinn.

Nokkru síðar rakst Þráinn á á færslu á facebook frá fyrrnefndum Kristni:

\"Tók upp viðtal við Þráinn Bertelsson í dag, hugsaði áður en viðtalið byrjaði, hvern andskotan er ég að taka viðtal við þennan fokking asna!! 3 mín eftir að viðtalið byrjaði vildi ég óska þess að ég væri ættingi hans eða þekkti hann, þekkti hann í alvöru. Maðurinn er snilllingur, fallegur snilllingur, fáránlegt hversu rosanlega fjölmiðlarnir, orðspor fjölmiðla og pólitíkin getur farið illa með gott fólk. Án gríns, flest fólk er ekki bara gott, heldur betri en við sjálf.\"

Út af þessum skrifum leggur Þráinn á eigin fésbók og segir: „Það er eitthvað til í því sem Kristinn Svanur segir í færslunni að ég hafi einhverra hluta vegna ekki fengið sérlega blíða eða jákvæða umfjöllun í fjölmiðlum á seinni árum að minnsta kosti, en það hallast kannski ekki á því að ég get nú ekki heldur sagt að íslenskir fjölmiðlar almennt séu þannig að ég líti beinlínis upp til þeirra.

En hvað sem því líður þá er hressandi að heyra eitthvað annað um sjálfan sig en að maður sé hálfviti og illmenni að auki.“