Léttir að pabbi lét duga að vatnslita!

 

 

Gjörningur ungs myndlistarmanns að dvelja lokaður í heila viku nakinn í gagnsæjum kassa hefur vakið mikla athygli.

Almar Atlason, myndlistarnemi, verður til sýnis í kassa í Listaháskólanum og gengur örna sinna í kassanum. Hann losar hægðirnar í poka og lætur detta út um rennu. Arnar lék sér með spilastokk fyrir stundu í kassanum en hér má fylgjast með Almari á youtube.

 „Fullkomið stjórnleysi,“ segir Almar um eigin tilraun í frétt mbl.is og tekur fram að tilraunin snúist ekki síst um hvernig fólk hugsar um fólkið í kring um sig.

Gauti Einarsson, apótekari á Akureyri, vitnar til fréttar Morgunblaðsins um Almar og skrifar á eigin síðu á facebook:

„Ég skal játa að ég stalst aðeins inn á youtube áðan að kíkja á hann Almar. Hann sefur vært núna blessaður en hefur örugglega notað tækifærið í nótt til að ganga örna sinna á meðan flestir sofa. Nema andfætlingar okkar auðvitað, þeir hafa verið límdir við tölvuskjáinn eða þrívíddargleraugun.
Ég er voðalega feginn að pabbi fékkst f.o.f. við vatnslitamálun.“