Lét drauminn rætast og byggði draumahúsið sem hún hannaði sjálf

Sandra Sigurðardóttir, þriggja barna móðir, kennari og dugnaðarforkur lét drauminn rætast og hannaði sitt eigið hús, draumahúsið, og byggði með hjálp góðra manna á innan við ári.  Sjöfn Þórðar heimsækir Söndru í hennar glæsilegu híbýli og fær góða innsýn í heimilisstílinn og hvernig lífið gengur fyrir sig í Hveragerði.  Söndru er margt til lista lagt sem glöggt má sjá þegar komið er inn á fallegt heimili hennar í Hveragerði, bænum sem er henni þykir mjög vænt um. Sandra vill hvergi annars staðar vera og  segir að gott sé að ala upp börn í Hveragerði.  Það er aðdáunarvert að sjá hversu mörgu Söndru hefur tekist að koma í verk og það virðist ekkert verkefni vera of flókið fyrir hana. 

\"\"

Hlýleiki og dökkir litatónar einkenna heimilið hennar þar sem bæði nýir og gamlir hlutir sem hafa tilfinningalegt gildi fá að njóta sín til fulls.  Hjarta heimilisins slær í eldhúsinu á eldhúseyjunni þar sem fjölskyldan ver dágóðum tíma saman.  „Svefnherbergið er minn staður og þar fær persónuleikinn minn að njóta sín, mínir uppáhalds hlutir, myndir af gyðjum og marmarabaðherbergið mitt sem mig hefur alltaf dreymt um,“ segir Sandra sem afar ánægð með útkomuna á draumahúsinu sínu.  Sjón er svo sannarlega sögu ríkari. Missið ekki af áhugaverðu innliti í kvöld.

Þátturinn Fasteignir & Heimili verður á dagskrá í kvöld klukkan 20.30 og aftur klukkan 22.30.