Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, lét fyrirtækið sem hann stýrir margsinnis borga utanlandsferðir fyrir eiginkonu sína og dóttur. Fram kom í Kastljósi RÚV í gærkvöld að hann hefði endurgeitt að hluta þessar greiðslur eftir að sjónvarpsmenn spurðust fyrir um málið. Í þættinum kom skýrt fram að það er andstætt reglum fyrirtækisins, sem er í opinberri eigu, að leggja út fyrir kostnaði af þessu tagi; ferðakostnað maka megi ekki greiða. "Ef skoðun Ríkisendurskoðunar er þessi, þá verður að fara eftir henni," sagði forstjórinn í Kastljósi og viðurkenndi þar afglöp sín. Óvíst er hver eftirmál þessa verða, en það er innanríkisráðherra að taka á málinu þyki honum ástæða til þess.
Mörg spjót hafa staðið á Isavia að undanförnu og er skemmst að minnast upplýsinga þess efnis að stjórnarmenn Isavia fá hæstu launin af stjórnarmönnum opinberra hlutafélaga á Íslandi.
Lét borga 10 sinnum undir konuna
Fleiri fréttir
Nýjast