Í þættinum Ég bara spyr sem sýndur verður kl.21.30 í kvöld á Hringbraut, fá áhorfendur að heyra í tveimur einstaklingum á miðjum aldri, sem hvor um sig hafa náð frábærum árangri til betra lífs. Annar þeirra er Svala Arnardóttir. Hún starfar í dag sem löggiltur bókari en flosnaði snemma úr námi sem unglingur og leiddist út í slæman félagsskap um tíma. Loks dreif Svala sig í skóla 45 ára gömul en það var hjá náms- og starfsendurhæfingunni Hringsjá. Þar náði hún ekki aðeins tökum á lestrinum, heldur hélt áfram í námi og kláraði bókaran. Hún segir hreinlega ,,allt” hafa breyst með náminu, því efinn um sjálfan sig hafði fylgt henni síðan hún var bara barn og hélt hún væri bara of heimsk til að geta verið í skóla. Á þeim tíma voru greiningar eins og lesblinda ekki þekkt. Hér má sjá brot úr viðtalinu við Svölu, en þátturinn er endursýndur á mánudag og á næsta laugardagskvöld.
Lesblind og hélt hún væri bara heimsk
Fleiri fréttir
Nýjast