Leoncie neitaði að bera vitni gegn Jóni Baldvin: „Ég sagði Bryndísi frá því“

Söngkonan geðþekka Leoncie segir að hún hafi neitað að bera vitni í dómsmáli gegn Jón Baldvini Hannibalssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra. Leoncie segir á Facebook að henni finnist #MeToo-byltingin vera rugl, í kjölfarið segir hún að einhver hafi beðið sig um að vitna gegn Jón Baldvin.

„Einhver kona hringdi í mig og bað mig um að vitna ranglega gegn Jón Baldvin Hannibalssyni og ég neitaði að gera það,“ segir Leoncie á Facebook. „Ég sagði Bryndísi konunni hans frá því.“

Leoncie segir að hún vorkenni mönnum sem eru ásakaðir, en ekki öllum þó. „Ég gæti nafngreint nokkra íslenska tónlistarmenn sem áreittu mig, en ég er ekki svo lágkúruleg fyrir fimm mínútna frægð, því ég er þegar FRÆG um allan heim.“