Tónlistarkonan Leoncie var yfir sig hrifin af Eurovision mynd Will Ferrell, Fire Saga, og lýsti því yfir að um væri að ræða fullkomna lýsingu á Íslendingum og örvæntingarfullum tilraunum þeirra til að verða heimsfrægir. „Sem þeir munu aldrei verða,“ skrifaði söngkonan á Facebook í dag.
Þá tók hún einnig fram að fjöldi íslenskra tónlistarmanna hafi í gegnum tíðina gerst sekir um að stela lögunum hennar, sem og öðrum frægum lögum. „Vegna þess að þeir hafa enga hæfileika og fá aðeins verðlaun með því að veita mútur.“
Gegnumsýrt af spillingu
Íslenski tónlistarbransinn er að hennar mati gegnumsýrður af spillingu og frændhygli sem er til komið vegna sifjaspella. „Úrkynjað íslenskt sifjaspell er mjög, mjög raunverulegt,“ ítrekaði Leoncie.
„Will Ferrell hefur dregið upp fullkomna mynd af örvæntingarfullu íslensku Eurovision hermikrákunum. Hann ætti að fá heimsverðlaunin.“ Söngkonan lýsti einnig ósk sinni um að næsta mynd Ferrells fjallaði um spillinguna sem þrífst hér á landi. Hægt er að sjá færsluna í heild sinni hér að neðan.
This is the Real Ugly Truth about Icelandic Music Misfits and their ÍSLENSKA HAMFARA TÓNLIST. Perfect description of the...
Publicado por Leoncie India em Terça-feira, 21 de julho de 2020