Lenya Rún: „Afhverju hata laganemar gellur?“

Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, undrar sig á siðareglum laganema á lesstofu þeirra í Háskóla Íslands.

Hún greinir frá málinu á Twitter-síðu sinni og spyr, „Afhverju hata laganemar gellur?“

Lenya segist hafa fengið áminningu frá varalesstofustjóra nr. 4 vegna láta í henni og nöglunum hennar með vísan í siðareglurnar.

Í myndinni af siðareglunum sem Lenya setur á Twitter má sjá hluta af reglunum.

Meðal þess sem kemur fram er að leysa vind sé á tæpu vaði og er nemendum bent á að fara helst á klósettið til þess. Þá er skylda að bryðja brjóstsykur hátt og bannað að stela, nú auðvitað nema hjörtum.

Má ætla að siðareglurnar séu að einhverjum hluta gott grín meðal nemenda.