Lengdi nallann um helming

Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylkingarinnar á sér fáa líka þegar kemur að pólitískri sannfæringu. Hann ræddi við Lindu Blöndal og sagði meðal annars frá því að höfundur Internationalans, franska nítjándu aldar skáldið Eugene Pottier hefði birst sér í draumi og talið sig á að þýða síðustu vers baráttutextans mikla, einkennislag verkalýðsbaráttunnar og andstöðunnar við auðvaldið. Versin eru sex talsins og hingað til hafa einungis þrjú þeirra verið til á íslensku og sungin á viðeigandi stundum. Versin eru upprunalega hins vegar sex talsins og nú hefur Þorvaldur þýtt þau öll, fyrst núna er því Nallinn fullbúinn fyrir íslenska vinstrimenn. Hér má heyra Þorvald segja í viðtalinu á Hringbraut frá draumnum og samtalinu við Pottier en það flæktist fyrir hinum fyrrnefnda að vera ekki vel mælandi á frönsku. 

 

“Allir velkomnir  nema þá helst auðvaldið”

Alþýðufylkingin býður til opins fundar 25.maí um þingkosningarnar framundan, fundurinn verður í Friðarhúsinu við Njálsgötu. Í tilkynningu er viðvera sannra sósíalista æskilegust. “Allir velkomnir  nema þá helst auðvaldið”, stendur í auglýsingunni. Alþýðufylkingin bauð fram í tveimur kjördæmum fyrir síðustu kosningar en stefnir á framboð um allt land í haust. 

Á vefsíðu fylkingarinnar má lesa að Alþýðufylkingin er “baráttutæki íslenskrar alþýðu til að bæta hag sinn með því að heimta sitt úr höndum auðstéttarinnar. Eitt af aðal markmiðum okkar er félagsvæðing fjármálastarfsemi Íslands”, eins og segir á síðunni.