Bújarðir í eigu ríkisins hafa losnað til ábúðar bæði á Héraði og í Vestur-Skaftafellsýslu án þess að þær séu auglýstar til ábúðar í leigu eða í sölu. Að sögn Bændablaðsins þykir þetta léleg búmennska og segir viðmælandi blaðsins að ríkið sé orðið versti bóndi landsins. Aðrir viðmælendur blaðsins tala um áhugaleysi ríkisins á að leita að nýjum ábúendum.
Margoft hefur komið fram á liðnum misserum í viðtölum við ungt fólk sem hug hefur haft á að hefja búskap hversu erfitt það geti verið að finna vænlegar ríkisjarðir til ábúðar sem eru í rekstri. Í reglugerð um ráðstöfun ríkisjarða segir að þeim skuli að jafnaði ráðstafað til ábúðar eða til útleigu með leigusamningi þannig að best samræmist markmiðum stjórnvalda um búsetu og landbúnað.
Í grein blaðsins er rifjað upp sveitarstjórnir lýsa áhuga á að ríkisjarðir haldist í byggð. Búseta á ríkisjörðum skiptir einnig máli fyrir vaxandi ferðaþjónsutu á öllu landinu.
Nánar www.bbl.ís