Lekur af þessu feðraveldishrokinn: „við munum sjá til þess að þessi gömlu trix virki aldrei meir“

„Það er æv­in­lega svo að hæst byl­ur í tómu tunn­un­um og hef­ur þar aldrei verið nein und­an­tekn­ing á. Nú er það umræðan um orkupakka þrjú og keppt­ust fyr­ir nokkru ut­an­rík­is­ráðherra, Guðlaug­ur Þór, og fagri ferðamálaráðherr­ann með mörgu nöfn­in, að bulla út í eitt á fund­um um að orkupakk­inn skipti bara engu máli. Þeim láðist að geta þess í öllu bull­inu að með því að samþykkja orkupakk­ann væri það byrj­un­in á að koma Íslandi í kruml­urn­ar á ESB-skrímsl­inu.“

Þannig hefst pistill í Morgunblaðinu eftir Hjörleif Hallgrímsson, fyrrverandi ritstjóra Vikudags á Akureyri. Þar fjallar Hjörleifur gagnrýnir framgöngu Sjálfstæðismanna en stað þess að nefna Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur á nafn kallar hann Þórdísi fagra ferðamálaráðherrann með mörgu nöfnin. Þórdís Kolbrún er ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og starfandi dómsmálaráðherra.

Þórdís Kolbrún gagnrýnir Hjörleif á Twitter-síðu sinni. Þar segir hún:

„Geggjað framúrstefnulegt trix að þykjast ekki - eða leggja ekki á sig að muna nafn á konu. Álag á þeim. Þórdís Kolbrún eru 13 stafir. Guðlaugur Þór eru 12. Ég legg ekki meira á ykkur krakkar.“

Fleiri taka undir þessa gagnrýni en Vilhjálmur Þorsteinsson fjárfestir og fyrrverandi gjaldkeri Samfylkingarinnar segir: „Það lekur af þessu karlremban og feðraveldishrokinn. Svona viðhorf eru löngu komin fram yfir síðasta söludag.“

Þá segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingar:

„Þetta virkaði síðustu aldir, en við munum sko sjá til þess að þessi gömlu trix virki aldrei meir!“