Í fótboltaþættinum 433 á hringbraut í gærkvöld lýsir knattspyrnukappinn Sverrir Ingi Ingason sinni erfiðustu reynslu úti á fótboltavellinum, en það var nýverið í leik með liði hans Lokeren í Belgíu.
Liðsfélagi Sverris Inga hné nýverið niður á æfingu félagsins og lést af völdum hjartaáfalls í kjölfarið. Atvikið tók mjög á alla liðsfélagana eins og nærri má geta, en enginn miskunn var hjá mótshöldurunum; næsti leikur var eftir þrjá daga og hann varð að spila hvort sem mönnum líkaði betur eða verr. Sverrir Ingi lýsir því einlæglega í viðtalinu hvernig liðið hans allt var grátandi úti á vellinum á meðan á leiknum stóð.
Auks Sverris Inga var rætt við Rúnar Pál Sigmundsson þjálfara Stjörnunnar í þættinum í gær.
433 í umsjá Harðar S. Jónssonar var frumsýndur klukkan 21.15 í gærkvöld, en er einnig fáanlegur í heild sinni og klippum á hringbraut.is.