Leki úr þingnefnd: Áslaug Arna spurði lögreglustjóra um afsökunarbeiðni vegna Bjarna

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra spurði Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, hvort lögreglan ætlaði ekki að biðjast afsökunar á að hafa upplýst almenning um sóttvarnarbrot í Ásmundarsal þar sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra var viðstaddur.

Þetta hefur RÚV eftir öruggum heimildum af lokuðum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í mars þar sem Halla Bergþóra sat fyrir svörum þingmanna.

Áslaug Arna hringdi tvisvar í lögreglustjórann á aðfangadag. Í seinna skiptið, klukkan hálf fimm spurði Áslaug hvort það kæmi ekki afsökunarbeiðni frá embættinu vegna færslunnar, í ljósi þess að það hefði verið tilgreint sérstaklega að ráðherra hefði verið viðstaddur, var þá komið í ljós að ráðherrann var Bjarni.

Hvorki Halla né Áslaug hafa viljað upplýsa um hvað þeim fór á milli nákvæmlega fyrir utan að þær höfðu rætt um upplýsingagjöf lögreglu. Búið er að breyta veklagsreglum.