Umboðsmaður Alþingis telur tilefni til að kalla eftir upplýsingum um hver hlutur starfsmanna gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands var í að upplýsa starfsmann Ríkisútvarpsins (RÚV) þegar bankinn framkvæmdi húsleit hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Samherja árið 2012.
Umboðsmaður hefur birt bréf embættisins til forsætisráðherra þar sem hann óskar eftir upplýsingum frá forsætisráðuneytinu hvort til standi að skoða hver hafi heimilað upplýsingagjöfina til RÚV og hver vitneskja yfirstjórnar bankans hafi verið.
Forsætisráðuneytið mun á næstu vikum fara yfir og leggja mat á greinargerð sem það óskaði eftir frá Seðlabankanum, en dómur Hæstaréttar frá því í nóvember gefur til kynna að bankinn hafi gerst brotlegur með stjórnvaldssektum á Samherja. Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, gerði grein fyrir bréfi sínu á opnum fundi með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins í morgun.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/markadurinn/leki-si-til-ruv-um-husleit-i-samherja-veri-kannaur