Á áttunda tímanum í morgun voru björgunarskipin á Ísafirði og Bolungarvík kölluð út vegna báts í vanda 3 sjómílum norður af Kögri á Hornströndum. Leki hafði komið að bátum í morgun vegna bilunar og þurfti að koma dælum um borð í hann.
Björgunarskipið Kobbi Láka var komið að bátnum um 40 mínútum eftir að útkallið barst með dælur og hófu að dæla sjó úr bátnum. Það gekk nokkuð vel og tókst að halda í við lekann. Stuttu síðar kom björgunarskipið Gísli Jóns á vettvang með fleiri dælur og þegar búið var að dæla vel af sjó úr bátnum var hann tekin í tog. Gísli Jóns er nú á leiðinni með bátinn til Bolungarvíkur í fylgt Kobba Láka.