Leki hjá RÚV: Lögin úr Söngvakeppninni komin á netið

Vefsíðan eurovisionfun.com hefur birt lista yfir flytjendur og hlekki á öll lögin sem keppa til sigurs í Söngvakeppnni á RÚV, undankeppni Júróvísión sem fram fer á Ítalíu í maí. Lekin inniheldur öll keppnislögin, á íslensku og ensku.

Lögin sem keppa í Söngvakeppni RÚV þetta árið verða kynnt í línulegri dagskrá á RÚV í kvöld og hefjast leikar klukkan 19:50

Á vefsíðunni eurovisionfun.com hefur þó verið þjófstartað og þar hafa öll lögin verið birt, og virðist sem lekinn hafi átt sér stað í gærkvöldi.

Svipað atvik gerðist árið 2018, þegar dropbox-hlekkur með öllum lögum keppninnar fór á flakk áður en RÚV kynnti flytjendur og lög. Við það tilefni sagði dagskrárstjóri að herða ætti eftirlit og leynd með lögunum framvegis.