Fræi óttans hefur verið sáð, sagði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra í sérstakri umræðu um hryðjuverkin í París á Alþingi rétt í þessu.
Hann sagði að hryðjuverkamennirnir vonuðust til að breyta grunngildum, atburðir sem þessir hefðu mikil áhrif til skemmri og lengri tíma og meginverkefnið væri að finna jafnvægi milli öryggis og frelsis.
Fram kom í ræðu ráðherra að í morgun funduðu varnarmálaráðherrar Evrópu og voru samþykktar aðgerðir til að mæta hermdarverkum með vaxandi fjölda sameiginlegra liðsmanna með samþykki Sameinuðu þjóðanna. Ísland styddi slíkar aðgerðir.
Ræðu ráðherra var vel tekið, jafnt af samherjum sem stjórnarandstæðingum. Sá Helgi Hjörvar, Samfylkingu, sérstaka ástæðu til að hrósa Gunnari Braga fyrir yfirveguð og hófstillt viðbrögð allt frá fyrstu stundu eftir Parísarmorðin. Birgitta Jónsdóttir, Pírötum, sagði gleðilegt að þingmenn virtust allir staddir á svipuðum stað og átti þar við viðhorf og viðbrögð.
Ólöf Nordal inanríkisráðherra greindi frá fyrirhuguðum fundi næsta föstudag um hugsanlegar breytingar á Schengen samstarfinu.
Hún ræddi flóttamenn og sagði að Ísland fylgdist vel með og gerði hvað það gæti til að tryggja öryggi borgara okkar, lögreglu og landamæra. Mestu varðaði að fara fram með yfirvegun til að tryggja frelsi og lýðræðisleg gildi.
Ekkert bendi núna til að Íslandi stafi meiri ógn af alþjóðaumhverfinu en á öðrum tímum.