„Við fórum yfir málið með aðstandendum Hauks Hilmarssonar. Mér fannst þetta góður fundur og uppbyggilegur. Málið hefur verið í forgangi hjá okkur frá því að við fréttum af því,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sem átti fund með aðstandendum Hauks í gær. Morgunblaðið segir frá þessu í dag.
Guðlaugur Þór segir að haft hafi verið strax samband við tyrknesk stjórnvöld og allar mögulegar diplómatískar leiðir notaðar til að ýta frekar á eftir því. Haukur er týndur og talinn af.
Enn fremur voru sendiráð Íslands sem gætu mögulega haft eitthvað um málið að segja virkjuð, fastanefndir virkjaðar og einnig sagðist Guðlaugur Þór hafa átt samtal við tyrkneska utanríkisráðherrann.
Morgunblaðið hefur eftir Guðlaugi Þór:
„Tyrkneski utanríkisráðherrann þekkti til málsins því við höfðum leitað aðstoðar tyrkneskra stjórnvalda eftir hefðbundnum leiðum. Þetta mál er óvenjulegt og hefur utanríkisþjónustan ekki þurft að fást við svona mál í mjög langan tíma, en hefðbundnar diplómatískar leiðir eru líklegastar til að bera árangur.“
Leitað hafi verið til ræðismanna Íslands í Tyrklandi strax 6. mars síðastliðinn, haft samband við stjórnvöld vinaþjóða sem hafa reynslu af svipuðum málum. Einnig sé utanríkisþjónustan í samstarfi við aðila á svæðinu og hafi unnið málið í góðu samstarfi við lögregluna. Auk allra formlegra leiða séu óformleg tengsl nýtt.