Leitað með drónum og hundum við Ölfusvantsvík

Enn er leitað að fólkinu úr flugvélinni sem fórst yfir Þingvallavatni á föstudag. Fólkið var erlendir ferðamenn í skipulögðu útsýnisflugi og flugmaðurinn þaulreyndur.

Að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar, hófst skipulögð leit að fólkinu úr vélinni aftur klukkan 10 í morgun, eftir að flak vélarinnar fannst í vatninu, mannlaust. Lá fyrir að fólkið hefði komist út úr vélinni að sjálfsdáðum. Slysstaðurinn er einn kílómetra frá landi, þar sem styst er.

Sér­að­gerða­sveit Land­helgis­gæslunnar hefur verið kölluð út á staðinn. Sveitin sér­hæfir sig í neðan­sjávar­björgun.

„Fyrstu hóparnir mættu klukkan 10 í morgun og fleiri eru að bætast við. Leitin er skipulögð í kringum Ölfusvatnsvík,“ segir Davíð.

Að sögn fulltrúa Lögreglunnar á Suðurlandi komu aðstandendur fólksins úr vélinni til landsins í gær.