Leita réttar síns vegna beauty tips

Þrír karlmenn hafa leitað til Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, hæstaréttarlögmanns, vegna ummæla um þá á Facebook-hópnum Beauty tips þar sem þeir voru kallaðir kynferðisbrotamenn.

Að því er fram kemur á vefmiðlinum Vísi í dag hefur enginn mannanna verið dæmdur fyrir kynferðisbrot en mál á hendur tveggja þeirra eru í rannsókn. Sá þriðji hefur ekki verið kærður. Vilhjálmur segir við Vísi að það sé til fólk í netheimum sem treysti sér til að fullyrða um eitthvað sem gerðist í lokuðu herbergi milli tveggja aðila og það hafi enga vitneskju um nema frá þriðja aðila. Það treysti sér til að fullyrða að viðkomandi sé kynferðisbrotamaður. Það sé einfaldlega verið að leggja líf þessara aðila í rúst en oft sé um að ræða unglingspilta.



Hann segir þjóðina þurfa að hugsa sinn gang í þessum málum. "Ákveðnir hópar telja sig vera eigendur þessarar umræðu og hún þarf öll að vera á einn veg. Ef hún er ekki þessum hópum þóknanleg eru menn karlrembur eða eitthvað þaðan af verra,“ bætir hann við í samtali við Vísi og segir loks: "„Það gilda bara sömu lög og reglur um þessi mál og önnur. Það er ekki hægt að kalla einhvern kynferðisbrotamann fyrr en hann verður sakfelldur. Annað er dómstóll götunnar, það er samfélag sem mér hugnast ekki.“