Leita manns sem grófst í snjóflóði í móskarðshnjúkum

Talið er að einn maður hafi grafist undir snjóflóði sem féll í Móskarðshnjúkum um klukkan 13:00 í dag. Þá var annar maður á ferð á sama stað en hann grófst hins vegar ekki undir. Mennirnir voru hluti af þriggja manna hópi í göngu á svæðinu. Þetta kemur fram á vef ríkisútvarpsins.

Samkvæmt upplýsingum frá Davíð Má Bjarnasyni, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, eru leitarhundar komnir á vettvang. Þyrla Landhelgisgæslunnar sér um að flytja björgunarfólk á staðinn til að flýta fyrir aðgerðum.

Mikil hætta á snjóflóðum er á svæðinu og því hafa engir nema björgunaraðilar aðgang að svæðinu. Í dag og í gær hafa nokkur lítil snjóflóð fallið í Mosfelli og Skálafelli. Tekið er fram á vef Veðurstofu að sýna þurfi ýtrustu aðgæslu við ferðalög í fjallendi á Suðvesturlandi.

Vegna björgunaraðgerða hafa allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu verið kölluð út. Þá hefur slökkviliðið á höfuðbogarsvæðinu einnig sent mannskap á vettvang. Fyrst var talið að tveir hefðu orðið undir flóðinu en nú ljóst að það eru tveir.

Aðgerðarstjórn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið til starfa og hefur verið sett upp vettvangsstjórn.