Leit stendur yfir

Yfirvöld í Svíþjóð segja fátt. Árásin er nú sögð hryðjuverk og það hefur áhrif á verklag yfirvalda. Víðtækar öryggisráðstafanir eru í gildi um alla Svíþjóð. Vel er fylgst með umferð og mannaferðum til og frá Svíþjóð.

Einkum er fylgst vel með öllum flugvöllum og ferjuhöfnum og Eyrarsundsbrúnni og landamærastöðvum á landmærum Svíþjóðar og Noregs. 

Ekki leikur nokkur vafi á því að sænsk yfirvöld hafa fyrr en seinna hendur í hári þeirra sem frömdu ódæðið í Stokkhólmi. Þetta er eins tímaspursmál segja talsmenn sænskra yfirvalda.