Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir vegna sex opinna leiksvæða í Grafarvogi og Vesturbæ. Um er að ræða endurgerð leiksvæða við Berjarima, Flétturima, Hrísrima, Frostaskjól, Granaskjól og Öldugötu.
Endurgerðin felur í sér landmótun, endurnýjun gróðurbeða, leiktækja og yfirborðsefna eftir þörfum. Áhersla er lögð á öryggismál, betri fallvarnarefni, bætta lýsingu og aðgengi fyrir alla. Endurgerðin tekur mið af leiksvæðastefnu Reykjavíkurborgar og unnið er með hugmyndafræði snjallvæðingar. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í júní og verði lokið í september 2019. Kostnaðaráætlun vegna framkvæmdanna hljóðar upp á 120 milljónir króna.