Frá og með áramótum munu leikskólagjöld á Seltjarnarnesi lækka um 25% og verða þar með þau lægstu á landinu. Þetta kemur fram í nýrri fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2016 og næstu þrjú ár þar á eftir.
„Lækkun leikskólagjalda um 25% frá 1. janúar er ætlað að koma til móts við barnafjölskyldur í bæjarfélaginu. Tómstundastyrkir með hverju barni 6 – 18 ára verða kr. 50.000,- og niðurgreiðslur til foreldra með börn hjá dagforeldrum, sem nú nema kr. 75.000,- verða einnig hækkaðar frá 1. janúar nk,“ segir í tilkynningu á vef bæjarins.“
Hringbraut er ekki kunnugt um að nokkurt annað sveitarfélag ráðgeri lækkanir á leikskólagjöldum hvað þá um 25%.